Quotessence
Home / Quotes / Quote / Image

Quote image editor Ísak Regal

Back to previous page

“Allir í hringnum höfðu hátt um sig og gripu hver fram í fyrir öðrum. Hitalampi brann í loftinu fyrir ofan þau. Lilja fékk sér sopa af bjórnum og þegar hún setti hann aftur á borðið, fann hún að hávaðinn og skarkalinn á reykingasvæðinu fjaraði smátt og smátt út þar til herbergið varð fullkomlega hljóðlaust. Allt stöðvaðist. Fólk hætti að hreyfast; varð líkara útklipptum pappamyndum af sjálfu sér. Hún fann hitalampann brenna á hnakkanum og leit á strákinn sem sat við hliðina á henni og sá birtuna streyma á andlitið á honum. Haka hans lyftist upp í sömu andrá og hljóðið skall aftur á. Einhver kveikti sér í sígarettu. Kolla lyfti bjór að vörum sér og saup. Mannfólkið varð aftur raunverulegt. „Ég ætla á klósstið,“ kallaði Kolla í eyrað á Lilju og stuggaði við henni. Rödd hennar skar rönd í hávaðann. Þær stóðu upp í sömu andrá og glas skall í gólfið og molnaði. Hlátrasköll brutust út á borðinu á móti þeim. Kolla ýtti við öxlinni á Lilju og þær stauluðust út um dyrnar á reykingasvæðinu og aftur inn á barinn.” — Ísak Regal

Quote 1080 x 1350 Instagram portrait
More
Platforms
Pure ratios
Allir í hringnum höfðu hátt um sig og gripu hver fram í fyrir öðrum. Hitalampi brann í loftinu fyrir ofan þau. Lilja fékk sér sopa af bjórnum og þegar hún setti hann aftur á borðið, fann hún að hávaðinn og skarkalinn á reykingasvæðinu fjaraði smátt og smátt út þar til herbergið varð fullkomlega hljóðlaust. Allt stöðvaðist. Fólk hætti að hreyfast; varð líkara útklipptum pappamyndum af sjálfu sér. Hún fann hitalampann brenna á hnakkanum og leit á strákinn sem sat við hliðina á henni og sá birtuna streyma á andlitið á honum. Haka hans lyftist upp í sömu andrá og hljóðið skall aftur á. Einhver kveikti sér í sígarettu. Kolla lyfti bjór að vörum sér og saup. Mannfólkið varð aftur raunverulegt. „Ég ætla á klósstið,“ kallaði Kolla í eyrað á Lilju og stuggaði við henni. Rödd hennar skar rönd í hávaðann. Þær stóðu upp í sömu andrá og glas skall í gólfið og molnaði. Hlátrasköll brutust út á borðinu á móti þeim. Kolla ýtti við öxlinni á Lilju og þær stauluðust út um dyrnar á reykingasvæðinu og aftur inn á barinn.
— Ísak Regal