Quotessence
Home / Quotes / Quote by Ísak Regal

Quote by Ísak Regal

“Allir í hringnum höfðu hátt um sig og gripu hver fram í fyrir öðrum. Hitalampi brann í loftinu fyrir ofan þau. Lilja fékk sér sopa af bjórnum og þegar hún setti hann aftur á borðið, fann hún að hávaðinn og skarkalinn á reykingasvæðinu fjaraði smátt og smátt út þar til herbergið varð fullkomlega hljóðlaust. Allt stöðvaðist. Fólk hætti að hreyfast; varð líkara útklipptum pappamyndum af sjálfu sér. Hún fann hitalampann brenna á hnakkanum og leit á strákinn sem sat við hliðina á henni og sá birtuna streyma á andlitið á honum. Haka hans lyftist upp í sömu andrá og hljóðið skall aftur á. Einhver kveikti sér í sígarettu. Kolla lyfti bjór að vörum sér og saup. Mannfólkið varð aftur raunverulegt. „Ég ætla á klósstið,“ kallaði Kolla í eyrað á Lilju og stuggaði við henni. Rödd hennar skar rönd í hávaðann. Þær stóðu upp í sömu andrá og glas skall í gólfið og molnaði. Hlátrasköll brutust út á borðinu á móti þeim. Kolla ýtti við öxlinni á Lilju og þær stauluðust út um dyrnar á reykingasvæðinu og aftur inn á barinn.”

Quote by Ísak Regal

Work

Sara og Dagný og ég

Browse quotes and source details for this work. more

Author

Ísak Regal

Browse famous quotes and profile details for Ísak Regal. more

You May Also Like